Þorsteinn Daníel í úrtaki U21

Þorsteinn Daníel
Þorsteinn Daníel

Selfyssingurinn Þorsteinn Daníel Þorsteinsson hefur verið valinn til að taka þátt í úrtaksæfingum vegna U21 liðs karla í knattspyrnu.

Æfingarnar, sem eru undir stjórn Eyjólfs Sverrissonar þjálfara U21 landsliðs Íslands, fara fram í Kórnum helgina 6. og 7. desember.