Þorvaldur Gauti valinn efnilegasti hlauparinn

Framfarir, hollvinasamtök millivegalengda- og langhlaupara, völdu Þorvald Gauta Hafsteinsson efnilegasta hlaupara drengja á árinu 2022 vegna framfara í millivegalengdum og langhlaupum.  Hollvinasamtökin veita árlega peningastyrk vegna árangurs á hlaupabrautinni og fer afhendingin fram í tengslum við Víðavangshlaup ÍR sem verður haldið 20.apríl nk.  Þorvaldur Gauti Hafsteinsson er 16 ára gamall og keppir fyrir UMFS. Hann hefur verið að gera það mjög gott á hlaupabrautinni og viðurkenninguna hlaut hann fyrir bætingu í 800m hlaupi upp á 206 IAAF stig. Á árinu 2021 hljóp hann 800m á tímanum 2:16,40 min en bætti sig á árinu 2022 i 2:04,96 mín.  Frjálsíþróttadeild Selfoss  er virkilega stolt af Þorvaldi Gauta  og óskar honum til hamingju með viðurkenninguna