Þriðja umferð Íslandsmótsins í Motocross á Höfn í Hornafirði

Þriðja umferð Íslandsmótsins í motocross fór fram þann 18.júlí síðastliðinn á Höfn í Hornafirði hjá klúbbnum ASK, rúmlega 60 keppendur tóku þátt að þessu sinni, Keppendur frá Ungmennfélaginu áttu þar frábæran dag og voru í verðlaunasætum í fjórum flokkum. Í MX2 flokknum varð það Eric Máni sem sigraði flokkinn, Alexander Adaam varð í öðru sæti í MX1 flokknum, Ísmeal Ísak varð í öðru sæti í unglingaflokk á 125cc og Sindri Steinn Axelsson varð í þriðja sæti í Hobby flokk. 

Frábær árangur hjá keppendum frá UMFS.

Fjórða og síðasta umferð Íslandsmótsins fer svo fram á Akureyri þann 15. ágúst næstkomandi.