Þriggja marka tap gegn Mosfellingum

Vilius Rasimas
Vilius Rasimas

Áfram hélt handboltinn og í kvöld tóku Selfyssingar á móti ungmennafélagi Aftureldingar.  Leikurinn var hluti af 14. umferð í Olísdeildinni og lauk með sigri gestanna, 23-26.

Mosfellingar byrjuðu leikinn betur og komust fljótt í þriggja marka forystu, 1-4. Selfyssingar náðu að minnka muninn niður í 6-7 og jöfnuðu síðan leikinn í 11-11. Afturelding var hins vegar með eins marks forystu þegar liðin gengu inn í klefa í hálfleik, 13-14.  Selfoss náði að jafna leikinn fljótt aftur í  15-15 og 17-17, en þá tóku Mosfellingar við sér og skoruðu næstu fjögur mörk og breyttu stöðunni í 17-21. Það fór allt í lás hjá Selfyssingum sem áttu í kjölfarið afar erfitt uppdráttar sóknarlega.  Selfyssingar náðu ekki að brúa þennan mun og leiknum lyktaði með þriggja marka tapi, 23-26.

Mörk Selfoss: Hergeir Grímsson 6, Alexander Már Egan 5, Atli Ævar Ingólfsson 3, Ragnar Jóhannsson 3, Einar Sverrisson 2, Hannes Höskuldsson 2, Tryggvi Þórisson 1, Gunnar Flosi Grétarsson 1.

Varin skot: Vilius Rasimas 18 (40%).

Næsti leikur hjá strákunum er gegn FH í Kaplakrika á sunnudaginn kemur, kl 19:30.


Mynd: Vilius varði vel í markinu.
Umf. Selfoss / SÁ