Tinna og Vilius best

02 Leikmenn ársins
02 Leikmenn ársins

Lokahóf handknattleiksdeildarinnar fór fram í sumarblíðu í Hótel Selfoss á laugardagskvöldið síðastliðið.  Kátt var á hjalla og gleðin var ótakmörkuð af sóttvarnarreglum.  Dagskráin var með hefðbundnu sniði og var veislustjóri kvöldsins Gunnar okkar Sigurðarson.  Á hófinu voru veitt einstaklingsverðlaun fyrir meistaraflokka og U-liðið auk þess sem félagi ársins var valinn og aðrar viðurkenningar veittar.

SelfossTV var valin félagi ársins en þeir Árni Þór Grétarsson og Brad Egan tóku við viðurkenningunni, enda hausinn og hjartað í SelfossTV.  SelfossTV hefur verið öflugt í allmörg ár núna, en í ástandinu í vetur þegar íþróttahús landsins voru lokuð áhorfendum hefur mikilvægi SelfossTV aldrei verið meira.  Strákarnir á SelfossTV öxluðu þá ábyrgð og  sendu beint frá öllum hemaleikjum meistaraflokkanna sem ekki voru á Stöð 2 sport, U-liðanna ásamt flestum leikjum þriðja og fjórða flokks.  Alls voru þetta 56 útsendingar og nú hafa fimmtíu þúsund manns horft á. 

Tinna Sigurrós Traustadóttir var valin besti leikmaður meistaraflokks kvenna auk þess að vera markadrotting og valin sóknarmaður ársins. Vilius Rasimas var valinn besti leikmaður meistaraflokks karla. þá var Andri Dagur Ófeigsson valinn besti leikmaður U-liðsins auk þess að vera markakóngur liðsins. Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir var valin efnilegasti leikmaður og varnarmaður ársins, en Ísak Gústafsson var valinn efnilegastur karlamegin og Tryggvi Þórisson varnarmaður ársins. Hergeir Grímsson var sóknarmaður ársins og baráttubikarinn fengu þau Atli Ævar Ingólfsson og Katla Björg Ómarsdóttir. Einnig fékk Sölvi Ólafsson veitta viðurkenningu fyrir 100 leiki spilaða fyrir félagið.

Við óskum öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju!

Félagi ársins: SelfossTV

U-lið

Markakóngur: Andri Dagur Ófeigsson (69 mörk)
Besti leikmaður: Andri Dagur Ófeigsson

Meistaraflokkur kvenna

Markadrottning: Tinna Sigurrós Traustadóttir (67 mörk)
Varnarmaður: Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir
Sóknarmaður: Tinna Sigurrós Traustadóttir
Efnilegasti leikmaður: Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir
Baráttubikarinn: Katla Björg Ómarsdóttir
Besti leikmaður: Tinna Sigurrós Traustadóttir

Meistaraflokkur karla

Markakóngur: Hergeir Grímsson (121 mark)
Varnarmaður: Tryggvi Þórisson
Sóknarmaður: Hergeir Grímsson
Efnilegasti leikmaður: Ísak Gústafsson
Baráttubikarinn: Atli Ævar Ingólfsson
Besti leikmaður: Vilius Rasimas

 

Mynd: Árni Þór Grétarsson og Brad Egan, fulltrúar SelfossTV, taka við viðurkenningu 

Mynd: Verðlaunahafar  kvöldsins. Frá vinstri: Katla Björg Ómarsdóttir, Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir, Tinna Sigurrós Traustadóttir, Hergeir Grímsson, Andri Dagur Ófeigsson, Ísak Gústafsson, Vilius Rasimas, Sverrir Pálsson (fyrir hönd Atla Ævars Ingólfssonar) og Tryggvi Þórisson. 

Mynd: Sölvi Ólafsson með viðurkenningu fyrir 100 spilaða leiki fyrir Selfoss.