Tryggvi Þórisson framlengir

Tryggvi Þórissson feb 2021
Tryggvi Þórissson feb 2021

Hinn ungi og efnilegi línumaður Tryggvi Þórisson hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Selfoss til næstu þriggja ára. Tryggvi er að spila sitt þriðja keppnistímabil með meistaraflokki Selfoss og hefur hans hlutverk stækkað með hverju árinu. Á þessu keppnistímabili hefur Tryggvi verið einn af lykilmönnum í vörn Selfossliðsins og einnig hefur hann verið að láta taka til sín í sókninni. Tryggvi hefur átt fast sæti í yngri landsliðum Íslands síðustu ár og hefur tekið þátt í nokkrum verkefnum erlendis. Nú á dögunum var hann valinn í u-19 ára landsliðið fyrir æfingar í næsta mánuði.

Það eru mikil gleðitíðindi fyrir félagið að hafa Tryggva áfram innan okkar raða og er framtíðin svo sannarlega björt.

---

Mynd: Umf. Selfoss / ÁÞG