Tvö töpuð stig á heimavelli

Magdalena Anna Reimus - GKS
Magdalena Anna Reimus - GKS

Selfoss tapaði dýrmætum stigum í 1. deild kvenna í knattspyrnu þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við ÍR á heimavelli á föstudag.

Fyrri hálfleikur var markalaus en Selfyssingar voru sterkari aðilinn. Í síðari hálfleik óðu heimastúlkur í færum áður en Magdalena Anna Reimus braut loksins ísinn á 71. mínútu. Selfyssingum tókst ekki að bæta við mörkum og það reyndist dýrt því ÍR náði að jafna metin á síðustu mínútu leiksins.

Nánar er fjallað um leikinn á vef Sunnlenska.is.

Selfoss er í 7. sæti deildarinnar með 7 stig að loknum fimm umferðum og sækir ÍA heim á Akranesi fimmtudaginn 15. júní kl. 19:15.

---

Magdalena Anna Reimus skoraði mark Selfyssinga.
Ljósmynd: Sunnlenska.is/Guðmundur Karl Sigurdórsson