Umf. Selfoss býður flóttafólk velkomið á Selfoss

Selfoss_merki_nytt
Selfoss_merki_nytt

Á fundi aðalstjórnar Umf. Selfoss í janúar voru flóttafjölskyldur frá Sýrlandi boðnar velkomnar á Selfoss og jafnframt var öllum börnum og unglingum í hópnum boðið að æfa endurgjaldslaust hjá félaginu út árið 2017.

Með þessu vill félagið leggja sitt af mörkum til að fjölskyldurnar nái sterkri fótfestu í okkar góða samfélagi en rannsóknir hafa sýnt fram á að íþróttaiðkun er talin jákvæð leið fyrir ungmenni til að efla andlega vellíðan sína og mynda ný vináttutengsl og er ekki síst mikilvæg fyrir börn innflytjenda.