Ungar stúlkur í meistaraflokk Selfoss

undirskrift 3.sept 2106
undirskrift 3.sept 2106

Meistaraflokkur Selfoss hefur bætt við fjórum stelpum í hóp sinn, ekki var leitað langt yfir skammt enda þessar stúlkur allar leikmenn 3. flokks hjá Selfoss.

Þessar ágætu stúlkur hafa allar verið í æfingahóp meistaraflokks í sumar og í framhaldi af því óskuðu þjálfarar eftir því að þær myndu verða hluti af liðinu í vetur.  Þær eiga án vafa eftir að standa sig vel og gera sér líka allar grein fyrir því að árangur næst ekki nema með vinnu og aftur vinnu og þolinmæði.

Stjórn handknattleiksdeildar Selfoss fagnar þessari viðbót við hópinn og óskar þeim fjórmenningum sem og liðinu öllu góðs gengis í vetur en fyrsti leikur meistaraflokks er heimaleikur gegn Fram laugardaginn 10.september kl 14:00.

Stelpurnar eru f.v. Elva Rún Óskarsdóttir (2000), Ída Bjarklind Magnúsdóttir (1999), Þuríður Ósk Ingimarsdóttir (1999) og Dagbjört Rut Friðfinnsdóttir (1999).

MM