Unnu 55" led sjónvarp í jólahappadrættinu

Knattspyrna - Jólahappadrætti 2017
Knattspyrna - Jólahappadrætti 2017

Miðvikudaginn 20. desember síðastliðinn var dregið í jólahappadrætti unglingaráðs knattspyrnudeildar Selfoss. Aðalvinningurinn, 55“  led sjónvarp frá Árvirkjanum, kom á miða númer 322 sem er í eigu Ólafs J Óskarssonar og Öddu Hrannar Hermannsdóttir. Það var Selma Sigurjónsdóttir formaður unglingaráðs knattspyrnudeildar Selfoss sem afhenti Ólafi og Öddu sjónvarpið í verslun Árvirkjans milli hátíða.

Á myndinni eru þau Ólafur og Adda ásamt Selmu, Jóhanni Konráðssyni verslunarstjóri í Árvirkjanum og Inga Rafni Ingibergssyni starfsmanni knattspyrnudeildar.

Hægt er að vitja vinninga á skrifstofutíma í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, að Engjavegi 50.

Vinningsnúmer í happadrættinu: