Uppskeruhátíð Frístunda- og Menningarnefndar Árborgar 2022

Í dag, fimmtudaginn 29. desember 2022 fer fram uppskeruhátíð frístunda- og menningarnefndar Árborgar á Hótel Selfoss klukkan 19:30.

Á hátíðinni verður tilkynnt um hver verða íþróttakarl- og kona Árborgar 2022. Alls eru 23 efnilegir einstaklingar tilnefndir til þessa titla í ár. Þar að auki verða veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur í íþróttum á árinu sem er að líða sem og hvatningarverðlaun.

Á uppskeruhátíðinni verða í boði tónlistaratriði og kaffiveitingar fyrir gesti.
Vonumst til að sjá sem flest.