Uppskeruhátíð yngri flokka í knattspyrnu

Uppskeruhátíð yngri flokka Selfoss í knattspyrnu verður haldin laugardaginn 22. september næstkomandi. Hátíðin sem hefst kl. 14:00 verður á íþróttavellinum við Engjaveg. Þar verður m.a. farið yfir árangur sumarsins og veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur. Á eftir verða grillaðar pylsur. Iðkendur og foreldrar eru eindrgið hvattir til að mæta. Ef illa viðrar verður hátíðin flutt í Iðu.

Unglingaráð knattspyrnudeildar Umf. Selfoss