Úthlutun úr Ferðasjóði íþróttafélaga

ISI-logo
ISI-logo

Búið er að úthluta styrkjum úr Ferðasjóði íþróttafélaga til íþrótta- og ungmennafélaga, vegna keppnisferða innanlands ársins 2015. Til úthlutunar að þessu sinni voru 82 milljónir króna.

Fyrir úthlutunina í fyrra var tekin inn ný breyta í útreikningi styrkja úr sjóðnum, svokallaður landsbyggðarstuðull, sem hækkar útgreiðsluprósentuna í þrepum hjá félögum utan höfuðborgarinnar og nærsveita hennar. Þetta er í annað sinn sem úthlutað eftir þessari aðferð. Þetta hefur aukið hlut landsbyggðarinnar í úthlutun sjóðsins.

Að þessu sinni bárust sjóðnum 245 umsóknir frá 118 félögum úr 22 íþróttahéruðum vegna 2.742 keppnisferða í 22 íþróttagreinum. Heildarupphæð umsókna var kr. 427.990.778,-. Þau félög sem sóttu um styrk geta nú farið inn í umsókn sína í gegnum vefslóðina sem fylgdi stofnun umsóknarinnar og séð skiptingu styrkja pr. ferð.

Á Fjárlögum Alþingis er gert ráð fyrir 100 milljónum króna í Ferðasjóð íþróttafélaga vegna keppnisferða ársins 2016.

Úthlutað var tæplega þremur milljónum til HSK og þar af var hlutur Umf. Selfoss tæpar tvær milljónir. Styrkirnir eru greiddir beint til félaga og deilda.

Úthlutun til einstakra héraðssambanda og íþróttabandalaga má sjá á vef ÍSÍ.

Úthlutun til einstakra félag innan Héraðssambandsins Skarphéðins má sjá á vef HSK.