Vann 48" sjónvarp í jólahappadrætti

img_1071
img_1071

Fimmtudaginn 22. desember síðastliðinn var dregið í jólahappadrætti unglingaráðs knattspyrnudeildar Selfoss. Aðalvinningurinn, 48“  led/smart sjónvarp frá Árvirkjanum, kom á miða númer 1.390 sem er í eigu Birgis Gunnarssonar og fjölskyldu á Selfossi. Það var Jóhann Konráðsson verslunarstjóri í Árvirkjanum sem afhenti fjölskyldu Birgis sjónvarpið í verslun Árvirkjans milli hátíða.

Á myndinni er fjölskylda Birgis ásamt Jóhanni og Inga Rafni Ingibergssyni starfsmanni knattspyrnudeildar.

Hægt er að vitja vinninga á skrifstofutíma í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, að Engjavegi 50.

Vinningsnúmer í jólahappdrættinu