Verðlaunahafar yngri flokka

Selfoss merki
Selfoss merki

Lokahóf yngri flokka handknattleiksdeildar Umf. Selfoss var haldið miðvikudaginn 25. maí í íþróttahúsi Vallaskóla. Á dagskránni var verðlaunaafhending og sérstakur gestur var besti leikmaður Olís-deildar karla Selfyssingurinn Janus Daði Smárason en hann ræddi við iðkendur og hvatti þau til dáða í skemmtilegu innleggi.

Allir iðkendur í 6.-8. flokki drengja og stúlkna fengu verðlaunapening fyrir þátttökuna í vetur en í 4. og 5. flokki voru veitt einstaklingsverðlaun.

Góð mæting var hjá foreldrum og forráðamönnum og lauk hátíðinni með grillveislu.

Verðlaunahafar voru eftirfarandi

5. flokkur karla yngra ár
Markahæstur - Ísak Gústafsson
Besta ástundun - Árni Ísleifsson
Mesta framför - Elvar Elí Hallgrímsson
Besti sóknarmaður - Aron Darri Auðunsson
Besti varnarmaður - Guðmundur Tyrfingsson
Besti markmaður - Jón Þórarinn Þorsteinsson
Mikilvægasti leikmaður - Sindri Elíasson
Baráttumaður ársins - Arnar Daði Brynjarsson
Félagi ársins - Natan Þór Jónsson
Leikmaður ársins - Reynir Freyr Sveinsson

5. flokkur karla eldra ár
Markahæstur - Gunnar Gauti Valgeirsson
Mesta framför - Pálmar Arnarson
Besta ástundun - Árni Bárðarson
Besti sóknarmaður - Tryggvi Sigurberg Traustason
Besti varnarmaður - Tryggvi Þórisson
Besti markmaður - Gabríel Bjarni Jónsson
Mikilvægasti leikmaður - Karl Jóhann Einarsson
Baráttumaður ársins -  Hákon Birkir Grétarsson
Félagi ársins - Aron Örn Óskarsson
Leikmaður ársins - Vilhelm Freyr Steindórsson

4. flokkur karla yngra ár
Markahæstur -  Haukur Þrastarson
Mesta framför - Daníel Karl Gunnarsson
Besta ástundun - Þorsteinn Freyr Gunnarsson
Besti sóknarmaður - Haukur Páll Hallgrímsson
Besti varnarmaður - Einar Kári Sigurðsson
Besti markmaður -  Alexander Hrafnkelsson
Mikilvægasti leikmaður -  Sölvi Svavarsson
Baráttumaður ársins - Bergsveinn Vilhjálmur Ásmundsson
Félagi ársins -  Aron Emil Gunnarsson
Leikmaður ársins -  Haukur Þrastarson

4. flokkur kvenna yngra ár
Markahæsti leikmaður - Katla María Magnúsdóttir
Besta ástundun - Júlía Brá Ölversdóttir
Mesta framför - Rakel Guðjónsdóttir
Besti markmaður - Ragnheiður Björk Guðmundsdóttir
Besti sóknarmaður - Sólveig Erla Oddsdóttir
Besti varnarmaður - Elín Krista Sigurðardóttir
Mikilvægasti leikmaður - Sigríður Lilja Sigurðardóttir
Baráttumaður ársins - Agnes Sigurðardóttir
Félagi ársins - Katrín Erla Kjartansdóttir
Leikmaður ársins - Katla María Magnúsdóttir

4. flokkur karla eldra ár
Markahæstur - Ari Sverrir Magnússon
Mesta framför -  Stefán Blær Jóhannsson
Besta ástundun - Arnar Steinarsson
Besti sóknarmaður - Sveinn Kristinn Símonarson
Besti varnarmaður - Ari Sverrir Magnússon
Besti leikmaður - Anton Breki Viktorsson
Mikilvægasti leikmaður - Leó Snær Róbertsson
Baráttumaður ársins - Guðjón Baldur Ómarsson
Félagi ársins - Árni Már Ólafsson
Leikmaður ársins - Matthías Bjarnason