Verkefnasjóður HSK úthlutar úr sjóðnun tvisvar á ári

hsk_rgb
hsk_rgb

Á héraðsþingi HSK laugardaginn 11. mars var reglugerð Verkefnasjóðs HSK breytt og nú verður úthlutað tvisvar á ári úr sjóðnum. Umsóknir eiga að berast rafrænt á þar til gerðu umsóknareyðublaði á vef HSK fyrir 1. apríl eða 1. október.

Tilgangur Verkefnasjóðsins er að styrkja félags- og íþróttastarf á sambandssvæði HSK, en sjóðurinn veitir ekki styrki til mannvirkjagerðar. Að öðru leyti fer úthlutun úr sjóðnum eftir mati stjórnar sjóðsins.

Á vef HSK má sjá úthlutun síðasta árs, þar sem fram koma upplýsingar hvaða þættir starfsins voru styrktir. Eingöngu stjórnir aðildarfélaga HSK, deildir aðildarfélaga, sérráð sambandsins og starfsnefndir Skarphéðins geta sótt um styrk úr sjóðnum.

Ef félög og nefndir ætla að sækja um styrk úr sjóðnum til fleiri en eins verkefnis þarf að senda sér umsókn fyrir hvert verkefni fyrir sig. Reglugerð um Verkefnasjóðinn er að finna á vef HSK. Nánari upplýsingar veitir Engilbert Olgeirsson framkvæmdastjóri HSK í síma 482 1189 og hsk@hsk.is.