Frá Selfossvelli.
Vormót HSK fór fram í blíðskaparveðri á Selfossvelli fimmtudaginn 21.maí.
115 keppendur voru skráðir til leiks.
Á mótinu var sett eitt aldursflokka íslandsmet og HSK met þegar Bryndís Embla Einarsdóttir kastaði 500gr. spjótinu 51,16m. Fyrra met hennar var 46,93m. Um er að ræða mikla bætingu hjá Bryndísi. Lágmark á evrópumót U18 er 46,0 metar. Spennandi verður að fylgjast með Bryndísi á næstu misserum.
Tvö önnur HSK met voru einnig sett á mótinu. Ívar Ylur Birkisson bætti eigið met í 110m grindarhlaupi á 106,7cm grindur. Hann hljóp á 15,08sek en fyrra met hans var 15,28sek. Kristján Kári Ólafsson setti HSK met í kringlukasti þegar hann kastaði kringlunni (1,75kg) 44,97m og bætti fyrra HSK met Arnar Davíðssonar sem var upp á 44,83m.
Þorleifur Einar Leifsson hjá Breiðablik sigraði 110m grindarhlaup karla en hann hljóp á 14,99sek. Ívar Ylur Birkisson varð í öðru sæti.
Bryndís Lára Guðjónsdóttir sigraði í hástökki kvenna með stökki upp á 1,55m. Ísold Assa Guðmundsdóttir frá UMF Selfoss varð önnur og Stephanie Ósk Ingvarsdóttir frá Heklu þriðja en þær stukku einnig báðar 1,55m.
Jacques R.S. Borges Schmitt frá Breiðablik vann langstökk karla með stökki upp á 6,64m og Egill Atlason Waagfjörð frá Kötlu varð annar en hann stökk 6,60m.
Kristján Kári Ólafsson UMF Selfoss sigraði í kringlukasti (1,75kg) með kasti upp á 44,97m. Ingvi Karl Jónsson UMF Selfoss sigraði kringlukast karla með kasti upp á 48,54m.
Bryndís Embla Einarsdóttir sigraði spjótkast (500gr.) með áðurnefndu kasti upp á 51,16m og hún sigraði einnig spjótkast kvenna með kasti upp á 45,22m.
Ísold Sævarsdóttir hjá FH sigraði 100m grindarhlaup kvenna á tímanum 14,35sek. Helga Fjóla Erlendsdóttir frá Garpi varð önnur en hún hljóp á tímanum 16,02sek.
Cristina Alba Marcus Hafliðadóttir sigraði 100m hlaup kvenna en hún hljóp á tímanum 11,81sek.
Birkir Aron Ársælsson UMF Selfoss sigraði spjótkast (600gr) með kasti upp á 42,23m. Magnús Tryggvi Birgisson UMF Selfoss varð annar með kasti upp á 42,12m og Kristján Karl Gunnarsson UMF Selfoss varð þriðji með kast upp á 36,61m.
Örn Davíðsson UMF Selfoss vann spjótkast karla með kasti upp á 65,55m. Daníel Breki Elvarsson UMF Selfoss varð annar með 54,89m og Daníel Smári Björnsson UMF Selfoss varð þriðji með 32,44m.
Kolbeinn Höður Gunnarsson FH sigraði í 100m hlaupi karla á tímanum 10,78sek.
Júlía Mekkín Guðjónsdóttir ÍR sigraði í langstökki kvenna með stökki upp á 5,24m. Helga Fjóla Erlendsdóttir Garpi varð önnur með stökki upp á 5,14m og Magnea Furuhjelm Magnúsdóttir Dímon varð þriðja með stökk upp á 5,03m.
Hera Christensen sigraði í kringlukasti kvenna, hún kastaði kringlunni 54,53m. Hanna Dóra Höskuldsdóttir UMF Selfoss varð önnur með kasti upp á 37,74m.
Helga Lilja Maack ÍR sigraði í 800m hlaupi kvenna en hljóp á tímanum 2:23.20sek.
Hjálmar Vilhelm Rúnarsson UMF Selfoss sigraði í hástökki karla með stökki upp á 1,92m.
Leó Örn Þórarinsson FH sigraði í 800m hlaupi karla en hann hljóp á tímanum 1:58.07sek.
Benedikt Gunnar Jónsson sigraði í kúluvarpi U20 (6kg) með kasti upp á 14,98m. Kristján Kári Ólafsson UMF Selfoss varð annar með kasti upp á 12,54m.
Sigursteinn Ásgeirsson sigraði kúluvarp karla með kasti upp á 16,15m.
Eyrún Svala Gústavsdóttir Breiðablik sigraði 300m hlaup kvenna á tímanum 41,41sek. Þórhildur Sara Jónasdóttir UMF Selfoss varð önnur á tímanum 44,04sek og Hugrún Birna Hjaltadóttir UMF Selfoss varð þriðja á tímanum 47,33sek.
Irma Gunnarsdóttir FH sigraði í þrístökki kvenna með stökki upp á 13,16m. Magnea Furuhjelm Magnúsdóttir Dímon varð önnur með stökki upp á 10,74m.
Kristján Kári Ólafsson UMF Selfoss sigraði í sleggjukasti U20 (6kg) með kasti upp á 49,78m.
Örn Davíðsson UMF Selfoss sigraði í sleggjukasti karla með kasti upp á 47,34m
Irís Dóra Snorradóttir FH sigraði í 5000m hlaupi kvenna á tímanum 17:32.05.
Magnús Tryggvi Birgisson UMF Selfoss sigraði í þrístökki karla með stökki upp á 11,57m. Daníel Smári Björnsson UMF Selfoss varð annar með stökki upp á 10,88m.
María Helga Högnadóttir FH sigraði í kúluvarpi kvenna með kasti upp á 12,76m.
Davíð Magnússon sigraði í 5000m hlaupi karla á tímanum 15:18.51.
Kjartan Óli Bjarnason Fjölni sigraði í 300m hlaupi karla á tímanum 34,76sek.