Yfirburðir Selfyssinga í sundi

Aldursflokkamót HSK 2014
Aldursflokkamót HSK 2014

Aldursflokkamót HSK í sundi var haldið á Hvolsvelli 13. maí sl. Umf. Selfoss var eitt af sex félög af svæðinu sem sendu samtals 75 keppendur til leiks, 32 af  þeim voru 10 ára og yngri.

Sagt var frá mótinu í HSK fréttum vikunnar. Mótið tók 2 ½ tíma, en ekki var að sjá bilbug á keppendum, foreldrum eða starfsmönnum þrátt fyrir að allir væru orðnir vel blautir þar sem það ringdi megnið af mótinu. Alls voru stungurnar 161 og Svanur Ingvarsson ræsti af sinni kunnu snilld.

Besta afrek mótsins vann Laila Sicoli úr Umf. Selfoss. Hún synti 100 m skriðsund á 1:12,34 mín sem gefur 494 stig samkvæmt stigatöflu FINA. Selfoss vann stigakeppina með nokkrum yfirburðum líkt og í fyrra.

Sundnefnd HSK vill koma á framfæri þakklæti til starfsmanna sundlaugarinnar á Hvolsvelli sem aðstoðuðu og allan hátt og lögðu sig fram um að vel færi um alla, að ógleymdu heimafólki í Dímon, sem bauð upp á grillaðar pylsur frá SS.

Keppendur 10 ára og yngri fengu allir jafna viðurkenningu og engir HSK meistarar voru krýndir í þeim flokkum. Hér er getið um HSK meistara í flokkum 11 – 18 ára.

HSK meistarar:

100 m skriðsund 11 - 12 ára
Oliver Gabriel Figlarski   Selfoss  1:30,52
Sara Ægisdóttir   Selfoss  1:38,71

100 m skriðsund 13 – 14 ára
Dagbjartur Kristjánsson   Hamar  1:07,91
Ástríður Björk Sveinsdóttir   Dímon  1:26,03

100 m skriðsund 15 – 18 ára
Kári Valgeirsson   Selfoss  1:04,31
Laila Sicoli   Selfoss  1:12,34

100 m fjórsund 11 – 12 ára
Oliver Gabriel Figlarski   Selfoss  1:54,96
Sara Ægisdóttir   Selfoss  2:00,21

200 m fjórsund 13 – 14 ára
Dagbjartur Kristjánsson   Hamar  3:12,09
Eydís Birta Þrastardóttir   Selfoss  3:36,84                 

200 m fjórsund 15 – 18 ára
Baldur Þór Bjarnason   Selfoss  3:36,84

100 m baksund 11 – 12 ára
Heiðar Óli Guðmundsson   Hekla  2:04,96
Thelma Ína Magnúsdóttir   Selfoss  2:05,61

100 m baksund 13 – 14 ára
Orri Bjarnason   Dímon  1:32,59
Guðrún Rós Guðmundsdóttir   Hamar 1:51,79

100 m baksund 15 – 18 ára
Kári Valgeirsson   Selfoss  1:22,63
Heiða Arnardóttir   Hamar  1:33,89

100 m bringusund 11 – 12 ára
Oliver Gabriel Figlarski   Selfoss  2:03,88
Sara Ægisdóttir   Selfoss  2:06,41

100 m bringusund 13 – 14 ára
Högni Þór Þorsteinsson   Dímon  1:34,59
Guðrún Rós Guðmundsdóttir   Hamar 1:54,19

100 m bringusund 15 – 18 ára
Baldur Þór Bjarnason   Selfoss  1:54,19
Heiða Arnardóttir   Hamar  1:43,47

100 m flugsund 11 – 12 ára
Thelma Ína Magnúsdóttir  Selfoss  2:27,09

100 m flugsund 13 – 14 ára
Dagbjartur Kristjánsson   Hamar  1:29,25
Eydís Birta Þrastardóttir   Selfoss  1:44,50                 

100 m flugsund 15 – 18 ára
Kári Valgeirsson   Selfoss  1:20,56

 

Stigakeppni félaga:
1. Selfoss                160 stig
2. Hamar                   98 stig
3. Dímon                   90 stig
4. Garpur                  12 stig
5. Hekla                       6 stig
6. Hrunamenn           3 stig