Eva María Baldursdóttir sem keppir fyrir Pittsburgh sigraði í hástökki á PSU National Open þegar hún vippaði sér yfir 1.79m. Eva María var örugg í öllum sínum tilraunum og uppskar sigur að lokum eftir harða keppni. Umstökk þurfti til að skera út um sigurvegara hástökkskeppninnar. Frábær byrjun á keppnistímabilinu hjá Evu Maríu en á árinu 2025 bætti hún sinn persónulega árangur þegar hún stökk 1.84m.