Fundur handknattleiksdeildar um framtíðarsýn íþróttamannvirkja

Í kvöld fór fram fundur handknattleiksdeildar um framtíðarsýn íþróttamannvirkja.

Fundurinn var haldinn í Tíbrá og var vel sóttur.

Á fundinum var rætt um uppbyggingu við Stekkjaskóla og framtíðaruppbyggingu á svæðinu við Engjaveg. Aðstaða handknattleiksdeildarinnar er löngu sprungin og því mikið undir fyrir deildina að vel sé staðið að málum við uppbyggingu.

Einnig kom Eva Lind Elíasdóttir og flutti stutt erindi um sína sýn á svæðið, enda nýbúin að vinna meistaraverkefni um efnið.