Góður dagur á Stelpufjöri í Stekkjaskóla

Borðtennisdeild Umf. Selfoss átti frábæran dag á Stelpufjöri sem fór fram í Stekkjaskóla í gær.

Stelpurnar frá Selfossi fengu að æfa og eiga skemmtilega stund með öðrum stelpum frá Garpi, KR og Gnúpverjum.

Nokkrar stelpur af svæðinu komust því miður ekki með í þetta skipti, en vonandi geta þær tekið þátt næst.

Eftir góða og krefjandi æfingu fór hópurinn saman í Ísbúð Huppu, sem reyndist vera einn af hápunktum dagsins.

Borðtennisdeild Umf. Selfoss þakkar öllum sem tóku þátt fyrir frábæran dag og hlakkar til að endurtaka leikinn.