Hópfimleikamót og Mótaröð 2

3. flokkur 2 keppti í stökkfimi um helgina og stóðu sig með glæsibrag.
3. flokkur 2 keppti í stökkfimi um helgina og stóðu sig með glæsibrag.

Í lok febrúar/byrjun mars fór fram hópfimleikamót FSÍ og Mótaröð 2.

Selfoss átti þar flotta fulltrúa, en á hópfimleikamótinu kepptu 2. flokkur, 3. flokkur 1 og 2, og á Mótaröð keppti kepptu 1. flokkarnir okkar og meistaraflokkur.

Á þessu móti var keppt í svokallaða "semi-lendingu" sem þýðir að það er sett harða dýnu ofan á mjúka gryfjudýnu og því gefur lendingardýnan aðeins eftir þegar keppendur lenda á henni. Þetta er því kjörið tækifæri fyrir liðin að prufa ný stökk og æfa þau undir smá pressu. Á mótaröð er einnig leyfilegt að vera með fleiri keppendur í hverri umferð en á öðrum FSÍ mótum og fleiri fá því möguleikann á að taka þátt.

Liðin okkar stóðu sig vel um helgina, prufukeyrðu mörg ný stökk og söfnuðu góðri reynslu.Þá fengu þjálfarar góðar ábendingar frá dómurum um hvað mætti bæta fyrir næstu mót og hvað er á góðri leið.

Úrslit helgarinnar má finna hér: https://live.sporteventsystems.se/Score/WebScore/3529?f=7855&country=isl&year=-1

2. flokkur og 3. flokkur 1

1. flokkur kvk og mix

Meistaraflokkur

 

Fimleikadeildin óskar öllum þjálfurum og iðkendum til hamingju með helgina!

Fimleikadeild Selfoss er í samstarfi við Íslandsbanka, Hótel Geysi, Bílverk BÁ og HSH þrif og flutninga.