Önnur umferð Íslandsmótsins í Motocross - Akranesi

Önnur umferð Íslandsmótsins í motocross fór fram á Akranesi þann 27. Júní síðastliðinn hjá Vífa. Rúmlega 70 keppendur tóku þátt að þessu sinni, UMFS átti keppendur á palli í fjórum flokkum. Alexander Adam varð í þriðja sæti í MX1 flokknum, Eric Máni sigraði MX2 flokkinn, Ásta Petrea varð í öðru sæti í Kvennaflokk og Sindri Steinn varð í öðru sæti í Hobby flokknum. Frábær árangur hjá þeim öllum — til hamingju!

Þriðja umferð Íslandsmótsins fer fram á Höfn í Hornafirði þann 18.júlí næstkomandi.