Selfoss áfram í 2.deild á næsta tímabili
27.04.2026
Borðtennisdeild Selfoss spilaði umspilsleiki um sæti í 2.deild í TBR-húsinu laugardaginn 25.apríl.
Liðin sem urðu í 5. sæti í 1., 2. og 3. deild léku við liðin sem höfnuðu í 2. sæti í deildinni fyrir neðan.
Selfyssingar sigruðu borðtennisdeild Mosfellsbæjar (BM) 4-0 og munu því leika áfram í 2.deild á næsta tímabili.
Frábær árangur hjá deildinni sem heldur áfram að vaxa!
Frekari upplýsingar um leikina er að finna hér:
https://bordtennis.is/