Borðtennisdeild Umf. Selfoss er afar stolt af því að Weronika Grzegorczyk hafi verið valin borðtenniskona aprílmánaðar.
Weronika, eða Wero eins og hún er oft kölluð, hóf æfingar með Selfossi í september á síðasta ári og hefur frá þeim tíma verið mikilvægur hluti af hópnum.
Hún er metnaðarfullur og ástríðufullur borðtennisspilari sem leggur mikið af mörkum bæði innan og utan borðsins. Þá hefur hún einnig verið góð fyrirmynd og hvatning fyrir yngri leikmenn deildarinnar.
Borðtennisdeild Umf. Selfoss óskar Weroniku innilega til hamingju með þennan verðskuldaða árangur