HSK-mótið í meistaraflokki karla fór fram í íþróttahúsi Vallaskóla fimmtudaginn 29. desember sl. Var þetta fimmta árið í röð sem mótið er haldið eftir að það var endurvakið. Handknattleiksnefnd HSK sá um undirbúning og framkvæmd mótsins, en leikmenn skiptust á að dæma leiki.
Eins og undanfarin ár var mótið hraðmót þar sem leiktími var 2x10 mín. Fjögur lið tóku þátt í mótinu að þessu sinni: Selfoss 1 og 2, Árborg og Baldur. Dímon tók sér frí þetta árið en verður vonandi með að ári.
Úrslit leikja urðu eftirfarandi:
|
Selfoss 1 |
- |
Selfoss 2 |
17:4 |
|
Árborg |
- |
Baldur |
18:12 |
|
Selfoss 2 |
- |
Baldur |
6:11 |
|
Selfoss 1 |
- |
Árborg |
13:17 |
|
Árborg |
- |
Selfoss 2 |
14:11 |
|
Baldur |
· |
Selfoss 1 |
14:19 |
Lokastaða:
1. sæti Árborg 6 stig
2. sæti Selfoss 1 4 stig
3. sæti Baldur 2 stig
4. sæti Selfoss 2 0 stig
-ög