Guðmundur Stefánsson hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Fram eftir að hafa spilað í vínrauðu treyjunni frá blautu barnsbeini.
Gummi steig sín fyrstu skref í meistaraflokki með Selfoss sumarið 2025 áður en hann var lánaður til nágranna okkar í Ægi.
,,Ég er þakklátur fyrir tímann á Selfossi og allt fólkið sem ég hef kynnst á leiðinni. Liðsfélagar, þjálfarar, fólkið í kringum félagið og allir sem hafa mætt á völlinn og stutt okkur — takk fyrir allt,” segir Guðmundur við viðskilnaðinn.
Miðjumaðurinn knái átti frábært nýafstaðið tímabil og stimplaði sig inn sem algjöran lykilmann í liðinu. Hann spilaði 36 leiki, skoraði sex mörk og var á lokahófi félagsins á dögunum valinn miðjumaður ársins ásamt því að hljóta viðurkenningu fyrir mestu framfarir.
Selfoss þakkar Guðmundi fyrir hans framlag í Selfosstreyjunni og óskar honum góðs gengis á nýjum vettvangi.