Hópfimleikamót um helgina

Nú fyrstu helgina í febrúar fór fram hópfimleikamót FSÍ.

Fimleikadeild Selfoss átti þar 6 lið, 2 lið sem kepptu í 5. flokki og 4 lið sem kepptu í 4. flokki.

Liðin í 5. flokki voru að keppa á sínu fyrsta FSÍ móti og því mikil spenna fyrir því. Reglurnar eru á þann veg að það eru ákveðin æfing sem allir verða að gera í fyrstu umferð á dýnu og trampólíni, auk þess sem þjálfarar geta valið hvað þeir gera í næstu tveimur umferðum. Það eru þó ýmsar reglur tengdar því hvernig má velja þær umferðir og því ákveðin kúnst fyrir þjálfarann að velja æfingar sem eru vel framkvæmdar en sem flestir geta gert. Á gólfi eru einnig nokkrar skylduæfingar en einnig eru lögð áhersla á að keppendur geti gert einhverjar æfingar í flæði.

Í 4. flokki eru einnig 3 umferðir framkvæmdar á hvoru áhaldi og er hægt að velja á milli ákveðinna skylduumferða á dýnu og trampólíni sem allir þurfa að geta gert. Næstu tvær eru svo val þjálfarans með ýmsum reglum sem þarf að reyna að uppfylla. Á gólfinu eru einnig ákveðnar æfingar sem þarf að gera og kröfur sem þarf að uppfylla og er gert ráð fyrir að þær séu næsta skref á eftir þeim sem eru uppfylltar í 5. flokki.

Allir keppendur í 5. flokki fengu þátttökuverðlaun fyrir að hafa tekið þátt á sínu fyrsta móti á vegum Fimleikasambandsins.

Í 4. flokki fá liðin verðlaun eftir því hvaða stigafjölda þau fá, öll lið með meira en 37 samanlögð stig fá gull, öll lið með 30-36.99 stig fá silfur og lið með 29.99 eða lægra fá brons.

Selfoss gulur fékk silfurverðlaun fyrir sína keppni og Selfoss rauður, Selfoss grænn og Selfoss blár fengu öll silfur.

Virkilega skemmtileg helgi að baki og við erum stolt af okkar flottu iðkendum sem eru sumir að stíga sín fyrstu skref í keppni á meðan aðrir eru að safna í reynslubankann.
Til hamingju öll!