Afmælismót Júdósambands Íslands fyrir 20 ára og yngri var haldið um síðustu helgi. Mótið var haldið hjá Júdófélagi Reykjavíkur og voru 60 keppendur mættir til leiks frá 8 félögum. Júdódeild Umf. Selfoss sendi sjö keppendur á mótið og komu sex þeirra heim með verðlaun. Júdódeild Umf. Selfoss varð í 3. sæti á heildina litið.
| Félag | I | II | III | Keppendur | |
| 1. | JR | 7 | 2 | 5 | 15 |
| 2. | ÍR | 3 | 4 | 1 | 12 |
| 3. | UMFS | 2 | 2 | 2 | 7 |
| 4. | JDÁ | 2 | 1 | 0 | 3 |
| 5. | UMFN | 1 | 5 | 5 | 14 |
| 6. | UMFG | 1 | 2 | 0 | 3 |
| 7. | UMFÞ | 1 | 1 | 0 | 3 |
| 8. | JG | 1 | 0 | 0 | 2 |
Fyrst var keppt í yngstu flokkunum, 11-12 ára. Í -38 kg flokki keppti Hrafn Arnarson og náði 2. sæti. Í sama flokki keppti Bjartþór Böðvarsson og hafnaði hann í 3. sæti. Í -46 kg flokki í sama aldurhópi keppti Halldór Ingvar Bjarnason. Halldór átti fjórar viðureignir og vann þrjár þeirra og náði þar með 2. sæti.
Í aldurshópi 13-14 ára var hart barist. Mikael Jafet Ragnarsson vann allar sínar glímur eins og venjulega, flottur árangur hjá honum. Í -60 kg náði Jakob H.P. Ingvarsson 3. sæti. Í -66 kg keppti Grímur Ívarsson og sigraði eftir tvísýna og á köflum jafna baráttu. Úlfur Böðvarsson keppti einnig í -66 kg flokki og náði 4. sæti.