Skráning í fullum gangi á Unglingalandsmót UMFÍ

unglingalandsmotsmerki_-_tomt1
unglingalandsmotsmerki_-_tomt1

Skráning er í fullum gangi á Unglingalandsmót UMFÍ. Mótið verður haldið á Egilsstöðum dagana 3.-6. ágúst en það er Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands (UÍA) heldur mótið með UMFÍ að þessu sinni.

Mótið er fyrir 11-18 ára og þarf aðeins að greiða eitt þátttökugjald. Gjaldið er 7.000 krónur og er fyrir það hægt að skrá sig til keppni í fleiri en einni grein. Þau börn geta komið og keppt á mótinu sem verða 11 ára á árinu. Þau þurfa hvorki að vera skráð í ungmennafélag né íþróttafélag og geta komið hvort þau vilja með öðrum í hópi eða sem einstaklingar og mynda þá hóp með öðrum stökum börnum og ungmennum.

Þetta er 20. Unglingalandsmót UMFÍ. Það hefst 3. ágúst næstkomandi með keppni í golfi og verður því slitið sunnudaginn 6. ágúst.

Gert er ráð fyrir miklum fjölda fólks á Egilsstöðum yfir mótshelgina eða á milli 1.000-2.000 keppendum og aðstandendum þeirra, jafnvel allt upp undir 10.000 manns.

Á Unglingalandsmótinu verður keppt í 23 spennandi greinum. Þetta eru greinarnar: Boccia - Bogfimi - Fimleikalíf - Fjallahjólreiðar - Frisbígolf - Frjálsar íþróttir - Glíma - Golf - Götuhjólreiðar - Hestaíþróttir - Knattspyrna - Kökuskreytingar - Körfuknattleikur - Motocross - Ólympískar lyftingar - Rathlaup - Skák - Stafsetning - Strandblak - Sund - UÍA þrekmót - Upplestur - Íþróttir fatlaðra.

Úlfur Úlfur og fleiri skemmta

Kvöldvökur verða haldnar mótsdagana á Egilsstöðum og verða þar engin smástirni á ferðinni. Á meðal þeirra tónlistarmanna sem fram koma eru Úlfur Úlfur, Hildur, Aron Hannes, Emmsjé Gauti, hljómsveitirnar Amabadama og Mur Mur, Hafnfirðingurinn Jón Jónsson og fleiri.

Danskur sýningarhópur sem sló í gegn í Danmark Got Talent mæta á svæðið og sýnir listir sínar. Hópurinn kemur hingað til lands í boði fyrirtækisins Motus.

Unglingalandsmót UMFÍ er vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð. Komdu á Unglingalandsmót UMFÍ á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina!

Skráning fer fram á heimasíðu UMFÍ.