Unglingamót HSK

sund-unglingamot-hsk-2
sund-unglingamot-hsk-2

Unglingamót HSK í sundi fór fram í Sundhöll Selfoss sl. sunnudag og mættu keppendur frá þremur félögum til leiks. Keppt var í þremur flokkum: hnátu og hnokka 10 ára og yngri, sveina og meyja 11-12 ára og telpu og drengja 13-14 ára.Umf. Selfoss vann stigakeppni félaga með 71 stig, Hamar varð í öðru sæti með 55 stig og Dímon í þriðja með 21 stig.

Bætingabikarinn hlaut Jóhann Már Jóhannsonn, 11 ára Hamarskeppandi, fyrir 50 metra baksund, en hann synti á 1.09,28 og bætti tímann sinn frá Unglingamótinu 2015 um rúmar 58 sekúndur.

Hér að neðan er getið um HSK meistara í flokkum 11-14 ára en í flokki 10 ára og yngri fengu allir jafna viðurkenningu. Heildarúrslit má finna á heimasíðu HSK.

100 m skriðsund 13-14 ára
Sara Ægisdóttir, Selfoss
Oliver Gabríel Figlarski, Selfoss

50 m bringusund 11-12 ára
María Clausen Pétursd., Hamar
Teitur Snær Vignisson, Dímon

100 m baksund 13-14 ára
Sara Ægisdóttir, Selfoss
Oliver Gabríel Figlarski, Selfoss

50 m skriðsund 11-12 ára
María Clausen Pétursd., Hamar
Teitur Snær Vignisson, Dímon

100 m flugsund 13-14 ára
Sara Ægisdóttir, Selfoss
Oliver Gabríel Figlarski, Selfoss

50 m baksund 11-12 ára
Tamara Sól Kubrzeniecka, Hamar
Jóhann Már Jóhansssom, Hamar

100 m bringusund 13-14 ára
Birgitta Ósk Hlöðvesd., Selfoss
Adrian Zoladek

50 m flugsund 11-12 ára
María Clausen Pétursd., Hamar

---

Þetta glæsilega sundfólk tók þátt í unglingamóti HSK í sundi sem fór fram í Sundhöll Selfoss.
Ljósmyndir: Umf. Selfoss/Kristján Emil Guðmundsson

sund-unglingamot-hsk-3 sund-unglingamot-hsk-4