Guggusund

Guðbjörg H. Bjarnadóttir íþróttakennari hefur kennt ungbarnasund á Selfossi síðan 1991. Kennt er innilaug Sundhallar Selfoss í upphitaðri sundlaug um 34° c. Námskeiðin eru seinnipart fimmtudags eða föstudags eða á laugardagsmorgnum. Kennt er 1x í viku í 8 vikur. Foreldri kemur með barninu ofaní á öllum námskeiðunum!

Í boði eru margskonar námskeið frá byrjendanámskeiðum þar sem börnin eru fra 2 mánaða aldri og að námskeiði nr 5 þar sem börnin eru á aldrinum 4-7 ára. Námskeið í boði:

  • Byrjendanámskeið ca 2-7 mánaða
  • 2. námskeið ca 7-14 mánaða
  • 3. námskeið ca 1-2 ára
  • 4.námskeið ca. 2-4 ára
  • 5.námskeið ca 4-7 ára.

Námskeiðin eru ætluð bæði fyrir þá sem hafa verið áður í ungbarnasundi og eins fyrir þau börn sem ekki hafa verið áður á námskeiðum.

Ný námskeið hefjast 4 sinnum á skólaári; í kringum 18.ágúst, fyrrihlutann í október, snemma í janúar og í mars. Í maí og fram í júní eru svo byrjendanámskeið í boði.

Tilgangur: Að börnin læri að njóta sín í vatninu.

Markmið: Að venjast vatninu sem hreyfiumhverfi í gegnum sundið, efla hreyfiþroska, tilfinninga- og félagsþroska, þannig að börnin verði smá saman sjálfbjarga í vatni.

Í sundinu takast börnin á við ýmis verkefni þar af leiðandi fá þau örvun sem er jákvæð fyrir allan áframhaldandi þroska t.d. sjálfstraust og sjálfsmynd. Áhersla er lögð á leikinn, samspil foreldra og barns, líkamssnertingu og augnsamband (óskipta athygli).

Því meiri örvun því betra! Umhverfið í ungbarnasundinu hefur jákvæð áhrif á allan almennan þroska. Móttaka skynáreita og úrvinnsla þeirra er undirstaða alls þroska.

Barn sem hefur stundað ungbarnasund frá fyrstu mánuðum lífs síns hefur því fengið góða byrjun í upphafi þroska síns bæði á líkama og sál.

Ný íslensk rannsókn sýnir að börn sem hafa verið í ungbarnasundi hafa betri samhæfingu og jafnvægi en samanburðarhópurinn.