Þrjú HSK met á Stórmóti Gogga galvaska

IMG_1927
IMG_1927

Átta krakkar frá fóru og tóku þátt í móti í Mosfellsbænum um helgina.  Krakkarnir stóðu sig öll frábærlega og héldu áfram að bæta sig, vinna til verðlauna og setja met.

Halla María Magnúsdóttir, 14 ára, sigraði í kúluvarpi og setti nýt HSK met þegar hún kastaði 12,16 m og bætti þar með gamla metið um 49 cm. Hún sigraði einnig 100 m hlaup á 13,65 sek, spjótkast með 32,22 m og kringlukast þegar hún kastaði 29,00 m.

Harpa Svansdóttir, 14 ára, sigraði í langstökki með 4,91 m.  Hún varð einnig önnur í kúluvarpi með 9,63, í spjótkasti með 27,75 m og í 100 m hlaupi á 13,80 sem er bæting hjá henni.  Í 80 m grind bætti hún svo HSK metið þegar hún varð þriðja í mark á 13,58 sek.

Natalía Rut Einarsdóttir, 12 ára, varð önnur í langstökki með 4,12 m og í 60 m hlaupi varð hún þriðja á 9,48 sek sem er bæting hjá henni.  Hún bætti sinn árangur einnig í spjótkasti þegar hún kastaði 13,36 m.

Hildur Helga Einarsdóttir, 11 ára, sigraði í kúluvarpi með 7,57 m, varð önnur í spjótkasti með 22,25 m sem er bæting um 1m og í kringlukasti í 14 ára flokki varð hún þriðja þegar hún kastaði 20,66 m en það er bæting á HSK meti í hennar flokki um rúma fjóra metra.

Helena Ágústsdóttir, 11 ára, varð þriðja í kúluvarpi með 6,29 sem er bæting hjá henni.  Hún bætti einnig árangur sinn í spjótkasti með 10,02 m.

Unnur María Ingvarsdóttir, 11 ára, var við sinn besta árangur í öllum greinum en vantaði herslumuninn á að bæta sig.

Hákon Birkir Grétarsson, 11 ára, sigraði kúluvarp með 8,67 m og varð í 1.-2. Sæti í hástökki með 1,20 m. Í 60 m hlaupi varð hann annar á 9,61 sek og í spjotkasti bætti hann sig er hann kastaði 17,32 m.

Hjalti Snær Helgason, 10 ára, keppti uppfyrir sig með 11 ára strákunum.  Hann gerði sér lítið fyrir og varð annar í spjótkasti með stórbætingu þegar hann kastaði 27,24 m. Hann bætti sig einnig í 60 m hlaupi er hann hljóp á 10,49 sek. Hjalti Snær náði síðan í 3.sæti í 800m hlaupi á tímanum 3:05,82mín.

IMG_1925