30. íþróttahátíð HSK í Þorlákshöfn

hsk_rgb
hsk_rgb

30. íþróttahátíð HSK verður haldin í Þorlákshöfn laugardaginn 14. júní og hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 15:00. Keppt verður í  frjálsíþróttum í flokkum 14 ára og yngri. Í frjálsíþróttum verður keppt á héraðsleikunum, sem eru fyrir keppendur 10 ára og yngri og á aldursflokkamótinu, sem er fyrir  11 - 14 ára.

Skráningarfrestur í keppnisgreinar er til kl. 23:00 fimmtudaginn 12. júní nk. Sjá nánar á heimasíðu HSK.