Aðalfundur Ungmennafélags Selfoss

Selfoss_merki_nytt
Selfoss_merki_nytt

Aðalfundur Ungmennfélags Selfoss árið 2016 verður haldinn í félagsheimilinu Tíbrá fimmtudaginn 14. apríl klukkan 20:00.

Aðalfundur Umf. Selfoss fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Fyrir fundinn verður lögð ársskýrsla félagsins, ársreikningar og fjárhagsáætlun næsta árs.

Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa eftirtaldir félagar:
1. Framkvæmdastjórn félagsins.
2. Formenn allra deilda félagsins.
3. Gjaldkerar allra deilda félagsins.
4. Auk þess samtals 30 fulltrúar deilda, sem kosnir eru á aðalfundi þeirra eða stjórn tilnefnir skv. ákvörðun aðalfundar deildarinnar, í réttu hlutfalli við iðkendur hverrar deildar á aldrinum 6-16 ára.

Hver félagi getur aðeins farið með eitt atkvæði. Hafi deild ekki haldið aðalfund eða sent fullgilt félagatal til aðalstjórnar á tilsettum tíma, eða ársreikningar deildar eru ekki samþykktir á aðalfundi hennar missa allir fulltrúar deildarinnar atkvæðisrétt á aðalfundi Umf. Selfoss.

Dagskrá aðalfundarins er sem hér segir:

  1. Formaður setur fundinn.
  2. Kosinn fundarstjóri og einn til vara.
  3. Kosinn fundarritari og einn til vara.
  4. Kosin þriggja manna kjörbréfanefnd.
  5. Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram til samþykktar.
  6. Formaður flytur ársskýrslu félagsins.
  7. Gjaldkeri leggur fram reikninga til samþykktar.
  8. Lagt fram álit kjörbréfanefndar.
  9. Umræður um skýrslu formanns og gjaldkera og reikningar félagsins bornir upp til samþykktar.
  10. Ávörp gesta.
  11. Tillögur lagðar fyrir fundinn.
  12. Verðlaunaafhending og lýst kjöri íþróttakarls og íþróttakonu Umf. Selfoss.
  13. Kaffihlé.
  14. Umræður og afgreiðsla tillagna.
  15. Lagabreytingar.
  16. Gjaldkeri leggur fram fjárhagsáætlun aðalstjórnar til samþykktar og deilda til staðfestingar.
  17. Ákveðin árgjöld félagsins og deilda
  18. Stjórnarkjör:
    1. Kosinn formaður.
    2. Kosinn gjaldkeri.
    3. Kosinn ritari.
    4. Kosnir tveir meðstjórnendur.
  19. Kosnir tveir skoðunarmenn og tveir til vara.
  20. Kosning í jóla- og þrettándanefnd.
  21. Önnur mál.

Aðalstjórn Umf. Selfoss