Boltaskólinn byrjar aftur í apríl

handbolti-boltaskolinn-ii
handbolti-boltaskolinn-ii

Boltaskóli fyrir 2-4 ára káta krakka verður aftur á dagskrá í apríl og maí. Boltaskólinn verður í Vallaskóla á sunnudögum frá kl. 10:00-10:50.

Byggt verður upp á fjölbreyttum boltastöðvum þar sem komið er inn á allar helstu boltagreinar og eru foreldrar virkir þátttakendur með börnunum.

Tímarnir eru:
2. apríl
9. apríl
23. apríl
30. apríl
14. maí
21. maí

Hægt er að skrá sig á staðnum eða senda skráningar til Sigrúnar Örnu Brynjarsdóttir í síma 697-3788 og sigrunarnab@gmail.com eða Hilmars Guðlaugssonar í síma 698-0007.

Verð er kr. 4.000 fyrir þessa sex tíma og er tekið við greiðslu á staðnum.

handbolti-boltaskolinn-i handbolti-boltaskolinn-ii