Einn Selfyssingur í úrtaki fyrir U16

ksi-merki
ksi-merki

Selfyssingurinn Anton Breki Viktorsson hefur verið valinn til að taka þátt í úrtaksæfingum vegna U16 liðs karla.

Æfingarnar fara fram undir stjórn Freys Sverrissonar, þjálfara U16 landsliðs Íslands, í Kórnum laugardaginn 3. janúar og í Egilshöll sunnudaginn 4. janúar.