Evrópudagur um vernd barna gegn kynferðislegu ofbeldi

Skjaldarmerki Íslands
Skjaldarmerki Íslands

Evrópuráðið hefur tekið ákvörðun um að helga 18. nóvember baráttu gegn kynferðislegu ofbeldi og kynferðislegri misneytingu barna og eru aðildarríki Evrópuráðsins hvött til að festa daginn í sessi. Tilgangurinn er að stuðla að aukinni umræðu og samfélagsvitund um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum og að kynna  samning Evrópuráðsins um vernd barna gegn kynferðislegri misneytingu og kynferðisofbeldi, svonefndan Lanzarote samning. Samningurinn er heildstæðasta og víðtækasta alþjóðasamþykkt sem gerð hefur verið um vernd barna gegn kynferðisofbeldi. Ísland undirritaði Lanzarote samninginn árið 2008 og fullgilti hann árið 2012.

Evrópuráðið hefur í tilefni dagsins gefið út teiknimynd sem er um 3 mínútur að lengd og var unnin í samráði við hóp barna. Myndin er með einföldum og aðgengilegum boðskap fyrir börn á aldrinum 9 – 13 ára. Börn eru hvött til þess að leita til einhvers sem þau treysta ef þau eða einhver sem þau þekkja hefur verið eða er beittur ofbeldi. Myndin er með íslensku tali, með leyfi Evrópuráðsins, og verður aðgengileg frá 17. nóvember á vefsíðum velferðarráðuneytis, Barnaverndarstofu og  umboðsmanns barna.

 

http://www.velferdarraduneyti.is/media/frettatengt2015/Vernd_barna_gegn_kynferdislegu_ofbeldi_1280-720.mp4

ÍSÍ gaf út bækling um forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi í íþróttum haustið 2013

Bæklingur ÍSÍ um forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi

Tökum höndum saman og helgum 18. nóvember vernd barna gegn kynferðislegu ofbeldi.