Grímur valinn efnilegasti júdómaður Íslands

Grímur efnilegastur 2015
Grímur efnilegastur 2015

Selfyssingurinn Grímur Ívarsson var valinn efnilegasti júdómaður ársins á uppskeruhátíð JSÍ fyrir árið 2015 sem var haldin síðastliðinn laugardag. Þetta er mikil viðurkenning fyrir Grím sem og fyrir starf júdódeildarinnar á Selfossi.

Í umsögn um Grím, sem keppti ýmist í -90 kg eða -100 kg flokki, segir að helstu afrek ársins voru eftirfarandi. Norðulandameistari U21 í -90 kg flokki og silfur í sama þyngdarflokki í U18. Á Matsumae Cup varð hann í öðru sæti í U18 í -90 kg flokki og á Opna sænska í sama aldurs- og þyngdarflokki hreppti hann bronsverðlaunin. Grímur varð Íslandsmeistari í +100 kg flokki í U21 og hlaut silfur í +90 kg flokki í U18, gull á Afmælismóti JSÍ í U21 í -90 kg flokki og einnig hlaut hann silfurverðlaunin á Íslandsmeistaramóti karla í -100 kg flokki.

---

Grímur ásamt Jóhanni Mássyni formanni JSÍ (lengst t.v.), Hjördísi Ernu Ólafsdóttur og Þormóði Jónssyni (lengst t.v.).