Grunnskólamót Árborgar

Lokamót 14 ára og yngri 041
Lokamót 14 ára og yngri 041

Grunnskólamót Árborgar í frjálsum íþróttum verður haldið í 16. sinn miðvikudaginn 28. maí 2014 og fer keppnin fram á frjálsíþróttavellinum á Selfossi.

Klukkan 16:30 hefst keppni í 1. - 4. bekk  og klukkan 18:00 hefst keppni í 5. - 10. bekk.

Keppt er í eftirfarandi flokkum og greinum hjá stelpum og strákum:
1. - 2. bekkur – 60m hlaup, langstökk og kúluvarp (2kg).
3. - 4. bekkur – 60m hlaup, langstökk og kúluvarp (2kg).
5. - 6. bekkur – 60m hlaup, langstökk og kúluvarp (2kg/3kg).
7. - 8. bekkur – 100m hlaup, langstökk, kúluvarp (3kg/4kg) og spjótkast (400gr/600gr).
9. - 10. bekkur – 100m hlaup, langstökk, kúluvarp (3kg/5kg) og spjótkast  (600gr/700gr).

Allir í 1. - 4. bekk fá þátttökuverðlaun en veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í 5. - 10. bekk.

Hver keppandi í 1. - 4. bekk fær þrjár tilraunir bæði í langstökki og kúluvarpi.  Í 5. - 10. bekk fær hver keppandi fjórar tilraunir í kúluvarpi og langstökki auk þess sem keppendur í spjótkasti í 7. - 10.bekk fá fjórar tilraunir.

Skráningum skal skila eigi síðar en mánudaginn 26. maí á netfangið helgihar@simnet.is eða til íþróttakennara.

Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Anna Guðjónsdóttir í símum 482-3182 / 892-7052 eða á netfanginu helgihar@simnet.is.