Hafþór Þrastarson er kominn heim

16808377_10154446467532775_38630903_n
16808377_10154446467532775_38630903_n

Varnarmaðurinn sterki Hafþór Þrastarson hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Selfoss. Hafþór er Selfyssingur inn við beinið en hann spilaði sex leiki með Selfoss í Pepsí-deildinni árið 2012.

Hafþór er gríðarlega hraður og agressívur leikmaður en einnig sterkur leiðtogi sem kemur til með að styrkja hópinn innan sem utan vallar. Hann verður gjaldgengur með Selfoss á sunnudaginn kemur þegar liðið mætir Pepsí-deildarliði KR í deildarbikarnum.

Bjóðum Hafþór velkominn aftur í Selfoss

---

Fyrsti leikur Hafþórs var í snjó á Selfossvelli - síðan þá hefur lítið snjóað!
Ljósmynd: GKS