Heims- og ólympíumeistarar Noregs á Selfossi

Island-Noregur
Island-Noregur

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir heims- og ólympíumeisturum Noregs í vináttuleik í Vallaskóla á Selfossi þriðjudaginn 18. júní kl. 19:30. Noregur hefur á að skipa einu besta landsliði heims um þessar mundir en undir stjórn Selfyssingsins Þóris Hergeirssonar varð liðið heims- og ólympíumeistari.

Hvetjum fólk til að fjölmenna á leikinn og styðja við bakið á stelpunum okkar.