Hitað upp fyrir Aftureldingu

hamborgarar
hamborgarar

Föstudaginn 6. desember mun meistaraflokkur karla leika sinn síðasta deildarleik fyrir jólafrí gegn toppliði Aftureldingar. Leikurinn hefst klukkan 20:00 í íþróttahúsi Vallskóla. Þetta verður hörku toppbaráttuslagur og þurfa strákarnir á góðum stuðningi að halda.  Hvetjum alla til að mæta snemma í grillaða hamborgara og styðja svo strákana til sigurs frá fyrstu minútu. Oft er þörf en nú er nauðsyn að fylla húsið og styðja strákana til sigurs í síðasta heimaleik liðsins fyrir jólafrí.

Afturelding hefur verið á miklu skriði í vetur, eftir að hafa fallið úr efstu deild síðastliðið vor, en þeir hafa unnið alla 10 leiki sína í 1. deildinni í vetur. Örn Ingi Bjarkason hefur farið fyrir liði Aftureldingar í vetur og skorað 63 mörk í 10 leikjum, næstu menn á markaskoraralistanum  eru Árni Bragi Eyjólfsson með 37 mörk, Böðvar Páll Ásgeirsson með 35 mörk og Jóhann Jóhannsson með 34 mörk.

Selfyssingar eru einnig í toppbaráttunni en þeir sitja í dag í 3. sæti deildarinnar með 15 stig eftir 9 leiki. Þeir hafa unnið 7 leiki, gert eitt jafntefli og tapað einum. Einar Sverrisson er markahæstur í Selfoss liðinu með 55 mörk í 8 leikjum, næst markahæstur er Matthías Örn með 28 mörk í 5 leikjum og svo koma Hörður Másson og Sverrir Pálsson með 26 mörk í 9 leikjum. Sebastian Alexandersson stendur vaktina í markinu en hann hefur spilað gríðarlega vel í vetur.

Staðan í 1.deild karla

 

Leikir

U

J

T

Mörk

Nettó

Stig

Afturelding

10

10

0

0

265:203

62

20

Stjarnan

9

8

0

1

266:192

74

16

Selfoss

9

7

1

1

254:209

45

15

Grótta

9

6

1

2

238:214

24

13

KR

9

4

1

4

198:207

-9

9

ÍH

9

4

0

5

226:212

14

8

Fjölnir

9

3

0

6

216:247

-31

6

Þróttur

10

3

0

7

211:252

-41

6

Víkingur

9

3

0

6

209:232

-23

6

Fylkir

10

1

1

8

243:308

-65

3

Hamrarnir

11

1

0

10

227:277

-50

2