Íþróttasjóður

Rannís
Rannís

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði sem starfar samkvæmt lögum nr. 64/1998 og reglugerð nr. 803/2008.

Veita má framlög til eftirfarandi verkefna:

  • Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana
  • Útbreiðslu- og fræðsluverkefna
  • Íþróttarannsókna
  • Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga

Rannís hefur umsjón og eftirlit með Íþróttasjóði. Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á www.rannis.is og skal skila umsóknum á rafrænu formi. Umsóknarfrestur er til 1. október.

Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson, andres.petursson@rannis.is, sími 515-5833.