Íþróttaskóli barnanna hefst að nýju á sunnudag

Fimleikar 2014 (4)
Fimleikar 2014 (4)

Íþróttaskóli barnanna hefst að nýju sunnudaginn 18. janúar 2015. Kennt er í Baulu íþróttahúsi Sunnulækjarskóla í alls 10 skipti en síðasta skiptið er sunnudaginn 22. mars.

Kennarar eru Steinunn Húbertína Eggertsdóttir kennari og Sigurlín Garðarsdóttir íþróttafræðingur.

Kennt er í tveimur hópum. Hópur 1 sem eru börn fædd 2012, 2013 og janúar til júní 2014 er frá kl. 10:00-10:50. Börn fædd 2010 og 2011 eru í hóp 2 sem er frá kl. 11:00-11:50.

Skráning á staðnum frá klukkan 9:30. Verð krónur 12.000 og svo er 50% systkinaafsláttur. Hlökkum til að sjá ykkur á sunnudaginn.