Jordan Lee í raðir Selfyssinga

Knattspyrnudeild Selfoss hefur komist að samkomulagi við hinn 22 ára Jordan Lee Edridge að hann leiki með liði Selfyssinga næstu tvö árin.

Jordan Lee er fjölhæfur varnarmaður og kemur til liðsins frá Grindavík þar sem hann lék seinustu þrjú keppnistímabil. Hann er uppalinn hjá Chesterfield á Englandi en lék einnig með New Mills áður en hann hélt í Grind-víking til Íslands.

Það er mikil ánægja innan Selfoss að hafa tryggt sér þjónustu Jordan Lee og kemur hann til með að styrkja liðið í 1. deildinni næsta sumar.

---

Jordan Lee og Óskar Sigurðsson að lokinni undirskrift í Tíbrá.
Mynd: Umf. Selfoss/Gissur Jónsson