Júdóæfingar hefjast um mánaðarmótin

judo-hsk-mot
judo-hsk-mot

Æfingar í júdó fara í gang fimmtudaginn 29. ágúst hjá 11-15 ára. Iðkendur 8-10 ára hefja æfingar mánudaginn 2. september og iðkendur 6-7 ára degi síðar. Æfingar hjá elsta aldurshópi eru þegar hafnar.

Æfingar fara fram í sal júdódeildarinnar í gamla íþróttahúsi Sandvíkurskóla sem er staðsett norðan við Sundhöll Selfoss.

Æfingatímar og þjálfarar

Æfingagjöld

Gengið er frá skráningu í gegnum skráningar- og greiðslukerfið Nóra á slóðinni selfoss.felog.is en þar er einnig hægt að nýta frístundastyrk Sveitarfélagsins Árborgar með því að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða Íslykli.

Vinsamlegast athugið að rétt netfang verður að vera skráð í Nóra til að upplýsingar komist til skila.