Kristinn Þór Íslandsmeistari í 800 metra hlaupi

kristinn_thor
kristinn_thor

Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum var haldið í 90. skipti á Akureyri 23.-24. júlí og voru ellefu félög skráð til leiks með 157 keppendur. Alls mættu níu keppendur frá HSK/Selfoss til leiks og tóku þátt í 17 greinum. Liðsmenn unnu til fimm verðlauna auk þess sem nokkuð var um bætingar.

Kristinn Þór Kristinsson gerði sér lítið fyrir og varð um Íslandsmeistari í 800 m hlaupi sem hann hljóp á 1:54,91 mín. Hann vann einnig til silfurverðlauna í 400 m hlaupi þar sem hann náði sínum ársbesta tíma, hljóp á 50,79 sek.

Fjóla Signý Hannesdóttir vann til tvennra verðlauna á mótinu. Hún náði silfrinu í 400 m grindahlaupi, hljóp á 1:03,65 mín og vann bronsverðlaun í 100 m grindahlaupi, þar sem hún hljóp á 14.94 sek, sem er besti tími hennar á árinu.

Thelma Björk Einarsdóttir bætti persónulegt met í sleggjukasti þegar hún kastaði 42,20 metra og krækti í bronsverðlaunin. Þá bætti Harpa Svansdóttir einnig sinn besta árangur í þrístökki. Hún stökk slétta 11 metra og varð í fjórða sæti.

Öll úrslit mótsins má finna á Þór - mótaforriti FRÍ.

---

Kristinn Þór á hlaupabrautinni með Selfoss.
Ljósmynd: Umf. Selfoss/Ólafur Guðmundsson