Kristinn Þór til liðs við Selfoss

IMG_9881
IMG_9881

Kristinn Þór Kristinsson einn fremsti millivegalengdar hlaupari landsins hefur skipt yfir í Umf. Selfoss og gengið til liðs við Frjálsíþróttadeild félagsins.

Kristinn er í dag fremsti  800 metra hlaupari landsins og hefur náð góðum árangri í þeirri vegalengd undanfarin ár. Hann er fastamaður í landsliði Íslands í frjálsum íþróttum og hefur m.a. keppt á Smáþjóðaleikum og öðrum stórmótum fyrir Íslands hönd. Á síðastliðnu ári keppti hann t.a.m. á heimsmeistaramótinu fyrir Íslands hönd.

Þjálfari Kristins er Erlingur Jóhannsson og mun samstarf þeirra halda áfram undir merkjum Umf. Selfoss.

„Það er mikill fengur fyrir okkur að fá Kristinn  í okkar raðir og mun styrkja starf okkar og ýta undir metnað og framfarir í starfinu. Einnig mun samstarf þeirra Kristins og Erlings styrkja starf okkar og nýtast í uppbyggingu og framförum innan deildarinnar" segir Helgi S. Haraldsson formaður Frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss.

---

Erlingur Jóhannsson þjálfari Kristins, Helgi S. Haraldsson formaður Frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss og Kristinn Þór Kristinsson hlaupari.
Ljósmynd: Umf. Selfoss