Ný stjórn sunddeildar.

Aðalfundur sunddeildar félagsins var haldinn 4.mar sl. Auk venjulegra aðalfundarstarfa var farið yfir blómlegt starf sl. árs og veittar viðurkenningar. Einnig var kosin ný stjórn deildarinnar, en Guðmundur Pálsson, sem verið hefur formaður hennar í átta ár, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.  Nýja stjórn skipa, talið frá vinstri: Róbert Sverrisson, meðstjórnandi, Jóhanna Margrét Eðvaldsdóttir, formaður, Anna Guðrun Sigurðardóttir, ritari, Ingibjörg Magnúsdóttir, meðstjórnandi og Svanfríður Hafberg, gjaldkeri.